Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjölmiðlar.

979. mál
[19:33]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og það er ánægjulegt að heyra að hún er sammála mér um að við þurfum að berjast gegn hatursorðræðu hvar sem hún er og þá kannski sérstaklega á almennum stöðum eins og í fjölmiðlum. Það er von mín að ráðherra sé tilbúin að fara í samtal við fjölmiðlana og okkur sem viljum berjast gegn hatursorðræðu og finna út hvernig við getum dregið úr þessu vegna þess að áhrifin sem þetta hefur á fólkið sem lendir í þessu eru miklu meiri en við höldum. Við sem erum forréttindafólk, við sem erum hvít á hörund, miðaldra, við vitum ekki hversu alvarlegt þetta er. Við þurfum sérstaklega að hugsa um yngri kynslóðirnar okkar þegar kemur að þessu. Það er von mín að ráðherra sé til í að vinna vel að þessu vegna þess að við þurfum bæði í fjölmiðlum, myndefni og öðru að tryggja það að við séum að byggja samfélag þar sem allir njóta þess að vera hér og líða ekki fyrir að vera einhvern veginn öðruvísi en við hin.