Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

fjölmiðlar.

979. mál
[19:35]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að stuðla að því að umræðan sé málefnaleg. Ég vil líka vekja máls á því í mínu andsvari að staða fjölmiðla, ekki bara á Íslandi, er grafalvarleg. Það hefur verið að gerast með tilkomu tækninnar. Við njótum hennar svo sannarlega á hverjum einasta degi og tækifærin sem eru í henni eru óendanleg og ég held að við finnum það bæði í störfum okkar og margt er alveg ótrúlega heillandi en að sama skapi þá hefur hún auðvitað valdið því að svokallað tekjumódel fjölmiðla er orðið gjörbreytt. Margir einkareknir fjölmiðlar fjármögnuðu sig meira og minna með tekjum af auglýsingum en nú þegar farvegur auglýsinga er í síauknum mæli inn á mynddeiliveitum, á samfélagsmiðlum þar sem gervigreindin er mjög flink í að finna út ákveðna hópa og hvaða hópar hafa áhuga á ákveðinni þjónustu eða vörum út frá leitarvélum og öðru slíku, þá erum við allt í einu komin í gjörbreyttan heim. Og af því að ég fór að tala um stöðu fjölmiðla þá er það viðfangsefni samtímans að taka samtalið og fara í þá vinnu að finna út úr því hvaða tekjumódel er sjálfbært til lengri tíma litið. Þar hef ég sem ráðherra verið að horfa í auknum mæli á áskriftir og líta til þeirrar þróunar sem hefur verið að gerast erlendis. Ég nefni blað eins og New York Times þar sem auglýsingatekjur hafa dvínað verulega en að sama skapi hafa áskriftartekjur aukist verulega.