fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Mig langaði að koma hér stutt upp í framhaldi af andsvari hæstv. ráðherra. Umhverfi fjölmiðla er svo sannarlega búið að breytast á undanförnum árum eða áratug. Við þurfum að vera opin og vera tilbúin að taka þá umræðu, sérstaklega hér inni og úti í samfélaginu, um það hvernig við getum gert fjölmiðlum kleift að afla tekna án þess að það kannski komi niður á fólki. Það er mjög algengt að búa til fyrirsagnir sem ganga allar út á það að maður fari með músina og velji þær til að lesa og þessar fyrirsagnir eru alltaf settar fram í æsifréttastíl: Þingmaður grenjaði í ræðustól, eða eitthvað. Eða: Þingforseti henti blaði í gólfið. Allar þessar setningar eru til þess fallnar að einhver ýti á þær. En það sem við oft áttum okkur ekki á er að það að skrifa hlutina svona, að fréttamenn séu neyddir til að skrifa hlutina svona til að auglýsingar á vefnum komi upp, gerir það að verkum að það sem verið er að fjalla um getur haft áhrif á fólkið sem er þarna á bak við og sært það. Þessi stíll, þessi æsifréttastíll, virðist vera sá eini sem tryggir þessum fjölmiðlum fjármagn. Við þurfum að hugsa um hvernig við tæklum það líka vegna þess að þetta allt saman elur síðan á þessu hatri, t.d. gagnvart þingmönnum sem gráta. Að sjálfsögðu er ég að taka slæmt dæmi vegna þess að, eins og ég sagði áðan, ég nýt þeirra forréttinda að lenda ekki mikið í þessu vegna þess að ég er hvítur, miðaldra karlmaður, með ekkert hár og grátt skegg.
Það er mikilvægt að við tökum ekki bara upp Evrópusambandsreglugerðir hérna heldur hugsum þetta vel og djúpt og nýtum þetta tækifæri til þess að taka á þeim hrikalegu hlutum sem fólkið okkar, krakkarnir okkar og bara ungt fólk almennt, er að lenda í að fá svona hatur á sig. Við verðum að vera tilbúin að berjast gegn því.