Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 99. fundur,  26. apr. 2023.

rafrænar skuldaviðurkenningar.

980. mál
[19:42]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um rafrænar skuldaviðurkenningar, mál nr. 980 á þskj. 1528. Með frumvarpinu er lagt til að setja heildarlög um nýtt lánaform, svonefndar rafrænar skuldaviðurkenningar sem ólíkt skuldabréfum verði gefnar út, varðveittar og þinglýst alfarið rafrænt.

Tillögur frumvarpsins eru liður í að fylgja eftir stefnu Alþingis og stjórnvalda um eflingu á stafrænni þjónustu hins opinbera. Frumvarpið er samið í menningar- og viðskiptaráðuneyti og dómsmálaráðuneyti í samráði við stýrihóp um rafrænar þinglýsingar sem skipaður er fulltrúum fyrrnefndra ráðuneyta, fjármála- og efnahagsráðuneytis vegna Stafræns Íslands, sýslumanna og Þjóðskrár Íslands. Til ráðgjafar við gerð frumvarpsins var starfsfólk frá Lagastofnun Háskóla Íslands.

Virðulegur forseti. Rafrænum skuldaviðurkenningum er ætlað að veita sambærilegt réttarfarshagræði og skuldabréf, auka skilvirkni í viðskiptum, einfalda lánaumsýslu, hafa jákvæð umhverfisáhrif og skapa hagræði fyrir almenning, lánveitendur og opinbera aðila. Með frumvarpinu er ekki hróflað við réttarreglum um skuldabréf sem hvíla að mestu á ólögfestum grundvelli í íslenskum rétti. Í frumvarpinu er lagt til grundvallar að kröfuréttindi samkvæmt rafrænum skuldaviðurkenningum lúti þeirri meginreglu fjármunaréttar að við framsal kröfu öðlist framsalshafi ekki betri rétt gagnvart skuldara en framseljandinn átti, þ.e. að sérreglur viðskiptabréfa um mótbárutap skuldara gildi ekki um rafrænar skuldaviðurkenningar.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að rafrænar skuldaviðurkenningar verði unnt að gefa út vegna hvers konar lána. Í ákvæði til bráðabirgða er þó gert ráð fyrir að rafrænar skuldaviðurkenningar verði fyrst um sinn bundnar við fasteignalán til neytenda og neytendalán til fjármögnunar á ökutæki en slík lán eru fyrirferðarmikil í framkvæmd. Lagt er til að sú takmörkun gildi til 31. desember 2025 eða þar til meiri reynsla verður komin á hið nýja lánaform. Samhliða þessu er lagt til að komið verði á fót upplýsingagátt um rafrænar skuldaviðurkenningar þar sem aðgengilegar verði upplýsingar um efni skuldbindinga samkvæmt rafrænni skuldaviðurkenningu og önnur atriði er hana varða.

Í frumvarpinu eru einnig lagðar til afmarkaðar breytingar á þinglýsingalögum, lögum um aðför, lögum um nauðungarsölu, lögum um meðferð einkamála, sem dómsmálaráðherra fer með, og lögum um sértryggð skuldabréf, sem fjármála- og efnahagsráðherra fer með. Miða tillögurnar að því að bæði þinglýsing og fullnusta rafrænna skuldaviðurkenninga geti farið fram með rafrænum hætti auk þess sem þær geti verið andlag tryggingasafns og að unnt sé að höfða dómsmál vegna þeirra samkvæmt sérstökum réttarfarsreglum XVII. kafla laga um meðferð einkamála.

Verði frumvarpið að lögum mun það einkum hafa áhrif á almenning, lánveitendur og opinbera aðila. Byggt er á því að umtalsverður félagslegur ávinningur felist í notkun rafrænna skuldaviðurkenninga í stað lánaskjala á pappírsformi, m.a. fyrir lántaka, fjármálastofnanir, fasteignasölur og sýslumannsembætti, þar á meðal vegna minni tilkostnaðar við umsýslu og þinglýsingar pappírsskjala og þá meira hagræði fyrir lántaka og lánveitendur. Þjóðhagslegur ávinningur af rafrænum þinglýsingum er talinn vera mikill og er hann að lágmarki metinn á bilinu 1,2–1,7 milljarðar á ári. Það er nú eitthvað. Þá er ótalinn ábati vegna vaxtamunar, hraðra viðskipta, minni ferðakostnaðar o.s.frv. Ábati ríkissjóðs mun einkum felast í aukinni skilvirkni í störfum sýslumanna. Gert er ráð fyrir því að fjárhagsleg áhrif verði óveruleg en til þess fallin að draga úr kostnaði fyrir ríkissjóð til lengri tíma.

Virðulegi forseti. Að lokinni umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar.