afglæpavæðing vörslu neysluskammta.
Forseti. Þegar frumvarp Pírata um afglæpavæðingu á vörslu neysluskammta vímuefna var fellt árið 2020 var því haldið fram af hálfu fulltrúa VG að flokkurinn styddi afglæpavæðingu, bara ekki núna. Rökin sem VG komu með voru að heilbrigðisráðherra væri alveg að fara að leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu og þar af leiðandi væri hún handan við hornið. Þegar fyrrverandi heilbrigðisráðherra lagði svo fram sambærilegt mál og okkar strandaði það í nefnd vegna þess að stjórnarliðar höfðu engan vilja til þess að ná því út. Í dag, þremur árum síðar, heyrum við enn afsakanir í allar áttir um hvers vegna enn og aftur eigi að viðhalda refsistefnu sem allir virðast þó sammála um að sé skaðleg og hafi mistekist. Enn og aftur skal einn viðkvæmasti hópur landsins bíða eftir réttarbót, kannski seinna, kannski á morgun, kannski einhvern tímann í haust, alla vega ekki núna.
Spurning mín til hæstv. ráðherra er því einföld og sú sama og ég spurði hæstv. innviðaráðherra og hæstv. fjármálaráðherra fyrir nokkru: Er ekki bara best, er ekki bara heiðarlegast, að hætta þessum fyrirslætti og viðurkenna einfaldlega að þessi ríkisstjórn mun aldrei afglæpavæða vörslu neysluskammta vímuefna?