afglæpavæðing vörslu neysluskammta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég vil byrja á að segja að stefna Vinstri grænna í þessum málaflokki er óbreytt að því leytinu til að við höfum tjáð okkur mjög skýrt með þeim hætti að við teljum að það sem hefur verið kallað refsistefna sé ekki rétta leiðin til að takast á við vímuefnavandann. Við teljum eðlilegt að við tökum á þessum málum með öðrum hætti en við erum líka meðvituð um að það þarf að vanda mjög til verka. Þessi stefna birtist auðvitað í þeirri staðreynd að fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, lagði fram frumvarp hér á þinginu en því var ekki lokið, m.a. vegna þess að umræðu var ekki lokið um málið á vettvangi nefndar. Hæstv. núverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, hefur einnig verið með slíkt mál á þingmálaskrá en hefur farið yfir það hér úr þessum stól að hann telji mjög mikilvægt að allir aðilar séu kallaðir að borðinu. Ég held að það sé mikilvægt því að auðvitað vekur þetta mál upp fjöldamargar spurningar og það snýst ekki eingöngu um það að við viljum hafna refsistefnunni, það snýst líka um hvernig við ætlum að standa að forvörnum og fræðslu, hvernig við ætlum að ræða þessi mál í heilbrigðiskerfinu, hvernig við viljum tryggja að fíknisjúkdómar séu ekki jaðarsettir í heilbrigðiskerfinu, þannig að það eru fjöldamörg álitamál sem þarf að taka afstöðu til.
Við vorum að ræða þessi mál nú síðast í morgun á vettvangi ráðherranefndar þar sem við vorum að ræða tillögur hæstv. heilbrigðisráðherra vegna ópíóíðanotkunar og hvernig við getum spyrnt við gagnvart þeim ógnvænlegu tíðindum sem við höfum af vaxandi fjölda dauðsfalla vegna ópíóíðanotkunar. Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur í hyggju að halda áfram þeirri vinnu sem hann hefur þegar hafið varðandi stefnumörkun um skaðaminnkun. Ég ber fullt traust til þess að sú vinna muni skila (Forseti hringir.) góðum niðurstöðum sem við munum taka til umfjöllunar hér á Alþingi, því að ég held að það sé mjög mikilvægt.