Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

afglæpavæðing vörslu neysluskammta.

[13:55]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er gott að hún minnist á ópíóíðafaraldurinn vegna þess að í baráttunni gegn andlátum vegna ofskömmtunar eða eitrunar af völdum vímuefnanotkunar skiptir hver mínúta sem viðbragðsaðilar hafa til lífsbjargandi meðferðar máli. Því er skelfilegt að vita til þess að oft eru viðbragðsaðilar ekki kallaðir til eða of seint vegna ótta viðstaddra um að með því að hringja á hjálp sé á sama tíma verið að hringja í lögregluna sem mætir á staðinn til að handtaka fólk fyrir brot tengd neyslu vímuefna. Því miður er staðan þannig í dag, á meðan ríkisstjórnin situr á rökstólum um einhver útfærsluatriði sem margoft er búið að ræða í velferðarnefnd, margoft hafa verið rædd í þessum sal og er alveg hægt að framkvæma núna strax ef vilji er fyrir hendi. Því hlýt ég að spyrja hæstv. ráðherra: Hver er það í alvörunni sem stendur í vegi fyrir því að hér verði farið í afglæpavæðingu á vörslu neysluskammta? Ég heyri það á hæstv. ráðherra að ekki er það VG. (Forseti hringir.) Eru það fulltrúar Framsóknar sem standa í vegi fyrir því? Er það Sjálfstæðisflokkurinn? Hvaða ráðherra stendur í vegi fyrir því að við afgreiðum strax þetta mikilvæga og lífsbjargandi mál? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)