Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

aðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum.

[13:58]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Greinendur á markaði og okkar helstu hagfræðingar telja ólíklegt annað en að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti síðar í þessum mánuði, 13. skiptið í röð. Þá munum við ná þeim áfanga að hafa hér hæstu stýrivexti í um árabil. Þetta er um svipað leyti og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fagnar 2.000 daga afmæli, sama ríkisstjórn og á að vera helsti liðsfélagi Seðlabankans í baráttunni við verðbólguna. En þessi 2.000 daga gamli liðsfélagi er einfaldlega búinn að yfirgefa leikvöllinn, situr inni í búningsklefa, búinn að taka af sér hnéhlífarnar, starir út í tómið og gerir lítið annað.

Innt eftir viðbrögðum eftir ákall verkalýðshreyfingarinnar, um aðgerðir til þess að liðka fyrir kjaraviðræðum og hjálpa heimilum landsins, sagði hæstv. ráðherra að stóra verkefnið væri að skapa forsendur fyrir efnahagslegum stöðugleika og bætti við, sem er líka mikilvægt, að félagslegur stöðugleiki væri ekki síður mikilvægur fyrir vinnandi fólk í landinu. Á sama tíma situr ríkisstjórnin og starir út í tómið og setur reikninginn á þetta sama fólk og verkalýðshreyfingin er að berjast fyrir og það situr uppi með reikninginn af aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar, sama fólkið og hefur ekkert annað val en að borga fyrir mat og fá laun í verðbólgukrónum, annað en stærstu fyrirtækin sem velja annan gjaldmiðil. Byrðarnar eru alltaf settar á heimilin í landinu, á litlu og meðalstóru fyrirtækin. Matvörugátt stjórnvalda — það er verið að benda á hana, hvenær sem hún mun líta dagsins ljós — mun ekki auka þeirra félagslega réttlæti en hún mun kannski draga fram það óréttlæti sem er í íslensku samfélagi.

Ég geri mér grein fyrir, hafandi verið aðeins lengur en 2.000 daga á þingi, að það er ákveðinn áfangi að halda ríkisstjórn saman. En það verður samt að hlusta á það sem helstu hagsmunaaðilar hafa verið að segja; verkalýðshreyfingin, Samtök atvinnulífsins, fjármálaráð. Það er verið að benda á að ríkisstjórnin er ekki að gera nægilega mikið til þess að berjast gegn verðbólgunni og helstu hagfræðingar landsins hafa beinlínis bent á að ríkisstjórnin er að vinna gegn barnafjölskyldum og heimilum í landinu. (Forseti hringir.)

Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Er ekki alveg öruggt (Forseti hringir.) að ríkisstjórnin hafi strax fundað eftir síðustu verðbólgutölur sem leiddu til hækkunar vísitölunnar? (Forseti hringir.) Erum við ekki að sjá fram á aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar? Er ekki ríkisstjórnin að fara að kalla á teppið verðlagsnefnd búvara, sem er einn helsti áhrifavaldurinn í því að verðbólgan er að hækka, og atvinnulífið líka? (Forseti hringir.) Hvar er aðhaldið frá ríkisstjórninni, ekki bara á sjálfa sig heldur líka út í atvinnulífið sem slíkt?

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að tíminn í óundirbúnum fyrirspurnum er mjög takmarkaður.)