Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

aðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum.

[14:03]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er bara enginn að taka undir með ríkisstjórninni í þessu. Það er enginn sem tekur undir það að ríkisstjórnin sé að standa sig í stykkinu, burt séð frá Viðreisn og okkar gagnrýni sem er búin að vera samfelld allt þetta kjörtímabil um að ríkisstjórnin eigi að sýna meira aðhald. Við erum að tala um fjármálaráðið, við erum að tala um Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda, við erum að tala um verkalýðshreyfinguna og svo virta hagfræðinga sem spanna allt litrófið. Það er verið að kalla eftir meira aðhaldi en ríkisstjórnin gerir ekkert.

Ég vil ítreka spurningu mína: Á ekki að stíga fastar til jarðar? Var ekki örugglega boðað til aukafundar í ríkisstjórninni? Annað eins hefur nú verið gert hjá ríkisstjórninni varðandi blaðamannafundi. Hvert er planið? Það er ekkert plan hjá ríkisstjórninni. Hækkaði verðbólgan eða ekki? Vísitalan hækkaði hérna meðan hún er byrjuð að lækka annars staðar, m.a. í Evrópu. Þar hafa m.a. samtök fyrirtækja verið kölluð inn á teppið. Þar hafa verið boðaðar almennilegar aðgerðir, ekki bara eitthvað sem er til skamms tíma og tekur ekki á verðbólgutölunum. Ég bið um aðhald í ríkisrekstri. (Forseti hringir.) Ég bið um skýr skilaboð út í atvinnulífið, til verkalýðshreyfingarinnar, til samfélagsins, að ríkisstjórnin ætli sér að vera liðsfélagi Seðlabankans í þessu gríðarlega mikla verkefni sem er baráttan gegn verðbólgunni. (Forseti hringir.) Eins og staðan er núna er ríkisstjórnin að skila auðu.