Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

samningar ríkisstjórnarinnar.

[14:06]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Rétt fyrir borgarstjórnarkosningarnar síðustu var skyndilega boðað til blaðamannafundar í Laugardal þar sem hæstv. forsætisráðherra ásamt borgarstjóra og ráðherra íþróttamála tilkynntu um að byggja ætti nýja þjóðarhöll og taka hana í notkun rétt fyrir kosningar 2025. Þetta var ekki fjármagnað. Það lá ekkert fyrir um þetta. Ég er ekki einu sinni viss um að hæstv. fjármálaráðherra hafi vitað af þessum fundi. Engu að síður var leiksýningin endurtekin með sömu aðalleikurunum akkúrat á meðan á heimsmeistarakeppninni í handbolta stóð. En svo kom fjármálaáætlun til ársins 2028. Og hvar er þjóðarhöllin í þeirri fjármálaáætlun? Voru fundirnir blekking eða er fjármálaáætlunin blekking? Borgarstjórinn hefur reyndar raðplatað ráðherra þessarar ríkisstjórnar. Eitt slíkt tilvik var árið 2019 þegar, af óskiljanlegum ástæðum, var undirritað samkomulag um áform um að flytja Reykjavíkurflugvöll út í Hvassahraun, nær virku eldstöðvunum Svartsengi og Krýsuvík. Þó var það rökstutt með þeim orðum að með því væri rekstraröryggi flugvallarins tryggt, rekstraröryggi hans yrði tryggt þar til nýi flugvöllurinn í hrauninu væri tilbúinn. En nú liggur fyrir skýrsla um að rekstraröryggi flugvallarins skerðist með nýrri Skerjafjarðarbyggð. Engu að síður virðist hæstv. innviðaráðherra ætla að aðstoða borgarstjórann við að skerða rekstraröryggi flugvallarins með þessari nýju byggð. Bæjarfulltrúar, allmargir, oddvitar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnum hafa loks vaknað til lífsins með þetta mál þótt ekki verði vart við það sama hjá ráðherrum flokksins. En hver er afstaða Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs til þessa? Hver er afstaða hæstv. forsætisráðherra?