samningar ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem ræddi hér þjóðarhöll og Reykjavíkurflugvöll sem virðast eiga það helst sameiginlegt að spurningarnar snúast um Framsóknarflokkinn. Þá er nú ágætt að spyrja formann Vinstri grænna um það, af því að mér fannst þetta vera svona helsta tengingin hjá hv. þingmanni.
Ef við byrjum á þjóðarhöllinni þá liggur það algerlega fyrir að við ætlum að byggja þjóðarhöll. Hins vegar liggur það líka fyrir, og lá fyrir á þeim fundi sem hv. þingmaður vitnar til hér, þeim síðasta, að forsenda þess að það takist er að sjálfsögðu samkomulag ríkisins og í þessu tilfelli Reykjavíkurborgar. Ástæða þess að við erum að stefna á að byggja þjóðarhöll í Reykjavík er eindreginn vilji íþróttahreyfingarinnar til að hún rísi hér í tengslum við það sem fyrir er, Laugardalshöll og önnur slík mannvirki sem munu geta samnýst með þjóðarhöllinni. Þessar viðræður standa yfir. En það liggur líka fyrir að vegna þess að við erum að hægja á fjárfestingum þá hægjum við aðeins á ferðinni í verkefninu en það breytir engu um fyrirætlanir okkar. Að sjálfsögðu mun þessi þjóðarhöll skipta verulegu máli fyrir okkar afreksfólk og ég er alveg viss um að við hv. þingmaður erum sammála um að þar má búa betur að.
Þegar kemur að flugvellinum sem hv. þingmaður leiddi svo hér út í þá hefur hæstv. innviðaráðherra nú bara skýrt það vel. Það er alveg ljóst að sjálfsögðu að öll uppbygging í útjaðri flugvallarsvæðisins getur haft ákveðin áhrif. En það breytir því ekki að þarna er verið að standa við það sem áður hefur verið sagt á sama tíma og öryggi flugvallarins er tryggt út frá flugöryggissjónarmiðum. Það liggur algjörlega klárt fyrir af hálfu hæstv. ráðherra og þarf ekkert að efast um það. En þess vegna átta ég mig ekki alveg á því þegar hv. þingmaður spyr mig hver afstaða mín sé nákvæmlega í málinu því að ég tel bara að hæstv. innviðaráðherra sé að vinna samkvæmt sínum skyldum og sínum sjónarmiðum í samráði við það sveitarfélag sem hýsir þennan flugvöll.