samningar ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra var ekki einu sinni byrjaður að svara þegar hann varpaði ábyrgðinni af öllu þessu yfir á Framsóknarflokkinn. Það mætti reyndar tína fleira til fyrir hæstv. ráðherra ef hann hefur sérstakan áhuga á því að fara að fylgjast með Framsóknarflokknum; húsnæðismálin, samgöngusáttmálinn, borgarlínan o.s.frv. En ég er að spyrja hér um ábyrgð hæstv. ráðherra sem leiðtoga ríkisstjórnarinnar á því sem virðist vera að teiknast upp aftur og aftur, að það er ekkert að marka orð og undirritanir ráðherra þessarar ríkisstjórnar. Hæstv. ráðherra lét hafa sig að mæta á báða þessa þjóðarhallarfundi og vissi vel hver staða ríkisfjármála væri á þeim fundum, en kemur svo og segir: Við ætlum enn þá að standa við allt sem við sögðum en það bara kemur ekkert fram um það í fjármálaáætlun. Og til hvers er þá þessi fjármálaáætlun? Hún hefur reyndar aldrei staðist hjá þessari ríkisstjórn, gjörbreytist frá ári til árs. Spár ganga ekki eftir. Eru þetta ekki bara vísbendingar um það sem við sjáum gerast svo ítrekað (Forseti hringir.) að það er ekkert að marka það sem frá þessari ríkisstjórn kemur?