samningar ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég á að draga út úr þessari síðari fyrirspurn hjá hv. þingmanni. Jú, hann er eitthvað viðkvæmur fyrir því að ég nefni áhuga hans á Framsóknarflokknum, gott og vel. Það liggur algerlega fyrir að það er þörf fyrir þjóðarhöll. Einbeittur vilji þessarar ríkisstjórnar liggur fyrir því að byggja þessa höll. Það liggur líka fyrir að það er vilji íþróttahreyfingarinnar að hún rísi í Reykjavík og það liggur fyrir að það þarf að ná samkomulagi milli ríkis og borgar um hvernig eigi að haga þeim málum. Allt hefur þetta legið fyrir í töluvert langan tíma. Það er vissulega fjárfestingarsvigrúm í fjármálaáætluninni, en við erum á sama tíma að segja að það sé ekki hægt að gera allt í einu þegar við erum stödd í því efnahagsástandi sem við erum í núna. Þar af leiðandi hægjum við aðeins á ferðinni, enda liggur ekki enn þá fyrir endanlegt samkomulag ríkis og borgar um kostnaðarskiptingu. Er einhver að ganga á bak orða sinna hér? Nei. Er stefnan skýr? Já. Erum við að standa við orð okkar? Já.