skerðingar í almannatryggingakerfinu.
Virðulegur forseti. Ég var að fá svar frá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra um skerðingar í almannatryggingakerfinu og það eru sláandi tölur. Í lok árs 2020 voru skerðingarnar 62 milljarðar, sem ríkisstjórnin var að spara sér. Tveimur árum seinna 75 milljarðar, aukning upp á 13 milljarða kr. í skerðingum. Hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra hafa ítrekað komið upp í þennan ræðustól og fullyrt að þau hafi sett svo rosalega mikið inn í almannatryggingakerfið og það hafi skilað sér þvílíkt til þeirra verst settu í kerfinu. Ég spyr mig bara, eins og segir í kvæðinu: Hvaða klisja er það? Hvernig í ósköpunum er hægt að halda svona fram þegar tölurnar tala sínu máli?
Hvernig kemur það út? Jú, ef við tökum það sem er sett inn í kerfið á þessu sama tímabili og það sem ríkisstjórnin hefur tekið út í sköttum og skerðingum þá liggur staðreyndin á borðinu: Af hverjum 10 kr. skila 2 kr. sér í vasa almannatryggingaþega. Ég spyr mig bara: Hvernig í ósköpunum er hægt að bjóða upp á þetta? Getum við sammælst um það og myndum við sætta okkur við það hér á þingi að farið væri með launin okkar á nákvæmlega sama hátt, að við fengjum að halda 2 kr. af hverjum 10 kr.? Við erum að tala um 20.000 kr. af hverjum 100.000 kr.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Getur hún sætt sig við þetta? Hvernig í ósköpunum ætlar hún að skýra þetta út fyrir fólki þarna úti sem hún hefur margoft haldið fram að þau hafi gert svo (Forseti hringir.) rosalega mikið fyrir, að aldrei hafi öðru eins verið bætt í?