Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

skerðingar í almannatryggingakerfinu.

[14:18]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin en staðreyndirnar tala sínu máli: Af hverjum 100 kr. af útgjöldum ríkisins vegna hærri lífeyris fólks renna 50 kr. strax aftur í ríkissjóð. Þá erum við ekki að tala um skatta eða útsvar. 40% fatlaðs fólks greiðir meira en 51% af útborguðum launum sínum í rekstur húsnæðis. 12% öryrkja greiða meira en 75% útborgaðra launa í rekstur húsnæðis. Þetta eru tölur frá því í nóvember og þetta er verra í dag. Tölurnar tala sínu máli. Það er verið að stórauka skerðingar. Það sem verið er að leggja inn í þetta kerfi skilar sér ekki til þeirra og þar af leiðandi verðum við að fara að taka á því. Við erum með alls konar klisjur eins og að það sé ekki lengur hægt að bíða, þeir fátæku geti ekki lengur beðið eftir réttlætinu. Á það að vera klisja áfram? Og síðan hitt, út frá öllum þessum skerðingum segi ég: Hvernig væri að sýna virkilega fram á það, (Forseti hringir.) draga úr skerðingum og hætta að skatta fátækt?