sameining framhaldsskóla.
Herra forseti. Í liðinni viku voru kennarar Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund boðaðir á fund þar sem kynntar voru tillögur nýs stýrihóps um sameiningu skólanna tveggja. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að skólarnir standi frammi fyrir breytingum þar sem gera megi ráð fyrir að nemendum í bóknámi muni fækka og starfs- og verknemum fjölga, en engar greiningar eða skýrslur liggja þessari staðhæfingu til grundvallar. Vert er að vekja athygli á að í greiningu ráðuneytisins á húsnæðisþörf skóla kemur fram að landsmönnum á aldrinum 16–65 ára mun fjölga um 13% til ársins 2027 og það mest á Suðvestur- og Suðurlandi. Þá er í áætlun til ársins 2033 gert ráð fyrir að skólasókn muni halda áfram að aukast í takt við farsæld barna og aukna áherslu á að draga úr brotthvarfi. Skemmst er að minnast þess tjóns sem ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks olli á framhaldsskólastiginu þegar kalli atvinnulífsins um styttingu framhaldsskólans var svarað án þess að farið væri heildrænt í skoðun á grunn- og framhaldsskólakerfinu. Ríkiskassinn og atvinnulífið réðu för en ekki hagsæld nemanda eða gæði menntunar í framhaldsskólum. Rannsóknir sýna verr undirbúna háskólanemendur, aukna vanlíðan hjá ungmennum, meiri streitu vegna þess álags sem fylgdi styttingunni.
Herra forseti. Ef sameina á skólana þarf að endurskoða frá grunni námsskipulag, framboð, námsbrautir, áfangalýsingar o.fl. því að umræddir tveir skólar eru í grundvallaratriðum ólíkir. Ég spyr hæstv. menntamálaráðherra: Er ætlunin að leggja niður báða þessa góðu, vinsælu og sögufrægu skóla og stofna nýjan sem verður einhvers konar blanda af þeim ólíku námsleiðum sem þessir skólar bjóða upp á í dag? Erum við að tala um ríkisstjórn sem fækkar framhaldsskólum og fjölgar ráðuneytum?