Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

sameining framhaldsskóla.

[14:23]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég vil byrja á því að segja, af því að hv. þingmaður spurði sérstaklega út í málefni Kvennaskólans og Menntaskólans við Sund, að í þeirri tilkynningu sem við sendum út í síðustu viku voru einnig aðrar sviðsmyndir skoðaðar er varða m.a. Suðurnesin, Akureyri og síðan Tækniskólann og Flensborgarskólann. Af því að hv. þingmaður talar um hvort einhverjar greiningar búi að baki því hver þróunin verður í framhaldsskólakerfinu þá erum við að vinna með tvennt sem mig langar að nefna sérstaklega.

Í fyrsta lagi eru það þær greiningar sem þegar liggja fyrir og settar voru af stað í tengslum við vinnu við eflingu starfsnáms og fyrirhugaða áætlun um hvernig við mætum þeirri auknu eftirspurn sem er eftir starfsnámi. Það er rétt, sem þingmaðurinn nefnir, að gert er ráð fyrir að það fjölgi næstu örfáu árin í framhaldsskólakerfinu en síðan fari að fækka, bara vegna lýðfræðilegrar þróunar. Á sama tíma erum við að gera ráð fyrir því að starfsnám muni eflast, eins og það hefur verið að gera undanfarin ár, og við mætum þeirri eftirspurn sem er eftir auknu starfsnámi. Þetta mun samkvæmt spám ráðuneytisins, og ég kalla eftir umræðu um það ef menn eru ósammála þeim, gera það að verkum að við munum sjá á næstu átta árum, eitthvað slíkt, fækka í bóknámi sem nemur um 2.500 nemendum og í starfsnámi sem nemur 1.500–1.800 nemendum. Þetta kallar á gríðarlega uppbyggingu á skólahúsnæði, sértæku verknámshúsnæði, og í tengslum við það þurfum við að spyrja okkur: Hvaða breytingar þurfum við að ráðast í til að mæta því þá hinum megin frá? Á sama tíma erum við með metnaðarfullar áætlanir um námsgagnaútgáfu, aukna þjónustu við kennara í gegnum skólaþjónustulöggjöf og svo mætti áfram telja. Það sem verið er að boða (Forseti hringir.) í þessari vinnu er að kanna fýsileikann á þessum sviðsmyndum sem þarna eru nefndar. Það er ekki búið að loka neitt inni, (Forseti hringir.) það er ekki búið að taka ákvörðun um að sameina neina skóla, en við erum að skoða fýsileika og það eru þessar röksemdir (Forseti hringir.) sem ég nefndi hér sem búa að baki því að skoða þessi mál.