Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

sameining framhaldsskóla.

[14:25]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig hefur lengi langað að kalla eftir afstöðu hans til menntunar, ekki síst í ljósi mikillar umræðu hæstv. háskólaráðherra um innihald menntunar, en það hefur lítið farið fyrir því hjá menntamálaráðherra.

Hæstv. ráðherra talar hér um fækkun nemenda og það var eiginlega óhugnanleg framtíðarsýn af því að hann talar um fækkun og fækkun og fækkun en gerir ekki ráð fyrir því að okkur fjölgar jafnt og þétt líka. Það virðist vera sem hæstv. ráðherra geri ráð fyrir að færri og færri fari í nám almennt og mér þykir það heldur sorgleg framtíðarsýn. Það virðist ekkert hafa verið rætt við stjórnendur, starfsfólk eða nemendur skólanna tveggja heldur hafa hugmyndir verið kynntar á afar viðkvæmum tíma í skólastarfinu.

Ég spyr því hæstv. ráðherra út í tímasetninguna. Hverjum datt í hug að það væri góð hugmynd að koma með svona tilkynningar í byrjun prófatarnar í framhaldsskólunum, þegar skráningar í framhaldsskólana eru að hefjast? (Forseti hringir.) Er tímasetningin kannski ekki tilviljun? Er þetta gert til þess að draga úr skráningum í þessa skóla, til að koma í veg fyrir að barn búi við fullkomna óvissu næstu ár? (Forseti hringir.) Er þetta eingöngu í sparnaðarskyni? Ég ítreka: Er verið að fækka skólum og fjölga ráðuneytum á sama tíma? (Forseti hringir.) Hvað er að frétta, hæstv. ráðherra?

(Forseti (BÁ): Forseti minnir enn á að ræðutími er takmarkaður í óundirbúnum fyrirspurnum.)