Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

sameining framhaldsskóla.

[14:27]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Ég vil byrja á því að segja í upphafi að hluti af þeirri vinnu sem nú fer fram, varðandi fýsileika þessara sviðsmynda, er einmitt samtal við starfsfólk, nemendur og eftir atvikum stjórnmála- og menntasamfélagið á viðkomandi svæðum. Hugsunin með þessu — af því að hv. þingmaður talaði um óhugnanlega framtíðarspá — það sem við erum að vinna með eru tölur sem koma frá Hagstofu Íslands um hver lýðfræðileg þróun er þegar kemur að fjölda framhaldsskólanema á næstu árum. Síðan erum við að vinna með þá björtu framtíðarspá að okkur takist, eins og okkur hefur tekist síðustu tvö til þrjú ár, að fjölga nemendum í starfsnámi þar sem við erum óhugnanlega langt á eftir okkar samanburðarþjóðum.

Á Íslandi eru um 33% — voru 30% fyrir tveimur til þremur árum — sem fara í starfsnám. Meðaltal Norðurlandanna er 45%. Til þess að mæta þessu þurfum við að ráðast í ákveðnar breytingar á framhaldsskólakerfinu. Við þurfum að byggja 10.000–15.000 m² af verknámshúsum (Forseti hringir.) við skóla og samhliða ber okkur skylda til að skoða hvort við getum með einhverjum (Forseti hringir.) hætti, fyrir utan önnur verkefni sem ég nefndi, þá sparað á í fermetrum annars staðar. (Forseti hringir.) Þetta er bara vinna sem er í gangi. Það verður samtal við alla aðila og sjónarmið hv. þingmanns eru m.a. tekin inn í þá vinnu.