Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .

390. mál
[14:42]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við þekkjum öll forsögu þessa máls, ágjöfina frá ESA og gagnrýnina þar. Það sem er að gerast hér í dag erum við í sjálfu sér ekki að upplifa í fyrsta sinn í þessum þingsal og í boði þessarar ríkisstjórnar en það er niðurstaða lægsta mögulega samnefnara, lægsta mögulega samnefnara ríkisstjórnarinnar, sem verður til þess að óboðleg vinnubrögð leiða til lagasetningar sem nær ekki fram tilgangi sínum, nær ekki fram því sem löggjöfin ætti að snúast um. Þetta eru óboðleg vinnubrögð með tilliti til almannahagsmuna. Þetta eru óboðleg vinnubrögð með tilliti til hagsmuna umhverfisins. Þetta eru óboðleg vinnubrögð í því ljósi að spegla einhvern metnað fyrir þessari atvinnugrein eða virðingu fyrir henni. Hér er skítabiks að fæðast og ég get ekki stutt þau vinnubrögð sem hafa verið hér viðhöfð.