Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .

390. mál
[14:44]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég var hér árið 2018 og kom einmitt upp í pontu til að vara við þessum lögum þegar þau voru sett á sínum tíma. Ég sagði jafnvel að við ættum hreinlega að hætta þessu sjókvíaeldi vegna þess að ekki aðeins er þetta gríðarlega mengandi iðnaður heldur er afurðin af þessum iðnaði líka frekar óholl og það eru engin rök gegn því að færa þetta hreinlega bara upp á land. En núna er verið að festa í lög að þetta eigi að geta farið fram hjá umhverfismati. Hagsmunir fjármagnsins eiga alltaf að trompa umhverfið. Á sama tíma ferðast hæstv. forsætisráðherra okkar út um allan heim að monta sig af einhverju velsældarhagkerfi sem ég sé bara ekkert glitta í. Hvers virði er umhverfið? Hvers virði er náttúran, ómenguð náttúra? Það er alltaf gróðinn, það er alltaf hagvöxturinn, það er alltaf fjármagnið sem fær að trompa algerlega öll loforðin um að við ætlum á einhvern hátt að fara að skoða virði einhvers annars en bara fjármagnsins. Hvers virði er umhverfið í þessu? Ég get ekki séð að við séum að nýta okkur velsældarhagkerfið til að meta það á neinn hátt þegar við erum að setja lög eins og þessi.