hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .
Virðulegur forseti. Það er kunnuglegt stef hjá þessari ríkisstjórn og þessum stjórnvöldum að þegar þau verða uppvís að því að brjóta gegn gildandi rétti þá skal bara setja brotin í lög. Þetta er því miður orðið allt of algengt. Hér er það sérstaklega ámælisvert vegna þess að hér erum við að tala um bæði rétt almennings til að geta rönd við reist fyrir hönd náttúrunnar sem hefur enga rödd til að vernda sig sjálfa og sömuleiðis er ekki bara verið að setja réttleysuna í lög heldur er verið að bæta um betur og útvíkka. Það er verið að gera fleiri framkvæmdaraðilum kleift að fara fram hjá umhverfismati. Það er verið að gera einhverja sérleið, sem engin réttlæting var fyrir á sínum tíma, að algildri leið, fram hjá reglum sem við eigum að heita skuldbundin. Þetta er alger vitleysa, virðulegi forseti.