Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. .

390. mál
[14:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég væri ansi hrædd um að það væri meiri hávaði hér inni í þessum þingsal ef við ætluðum að leyfa það að fara fram hjá umhverfismati með sjókvíaeldi. Þetta eru bara alveg nýjar fréttir og bara algert rugl. Þetta er bráðabirgðaákvæði. Mig langar að lesa aðeins upp úr álitinu:

„Meiri hlutinn bendir jafnframt á að með frumvarpinu er heimild til að veita bráðabirgðaheimild færð úr höndum ráðherra til Umhverfisstofnunar hvað varðar lög um hollustuhætti og mengunarvarnir og til Matvælastofnunar varðandi lög um fiskeldi og verður ákvörðun um veitingu undanþágu eða bráðabirgðaheimildar kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála ólíkt því sem nú er.“

Aðkoma almennings er tryggð. Eins og hv. þingmaður Viðar Eggertsson sagði: Þetta snýst ekkert um fyrirtækin, þetta snýst ekki endilega um sjókvíaeldið. Þannig að ég held að það sé óþarfi að hrópa úlfur, úlfur í þessu sambandi.