Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

415. mál
[15:57]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mér finnst mjög leitt að hafa misst af ræðu hv. þingmanns sem hann hélt yfir flokksfélögum sínum við stofnun Miðflokksins. (Gripið fram í.) Yfirleitt finnst mér gaman að hlusta á hv. þingmann en mér finnast langar ræður mjög leiðinlegar þannig að ég kýs að fá í smærri skömmtum hér hver sé stefna Miðflokksins í loftslagsmálum.

Ég verð að viðurkenna að það er svolítið kómískt að sjá fulltrúa Miðflokksins og fulltrúa Pírata á sama máli um að þetta mál sé ómögulegt þegar um er að ræða mál sem kemur frá Evrópusambandinu. Hún kemur mér ekki á óvart sú afstaða hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að telja það nú með öllu ómögulegt.

Ég spyr hv. þingmann, og kann að vera að ég hafi spurt hann áður en mér fundist svörin ekki nægjanlega skýr: Hvaða aðgerðir telur hv. þingmaður að væri skynsamlegast að ráðast í til þess að bregðast við loftslagsvánni?