upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.
Virðulegi forseti. Það var hálfkostuleg ræða sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flutti og fann þessu frumvarpi allt til foráttu og ekki síður Sjálfstæðisflokknum.
Við hv. þingmann vil ég segja að Sjálfstæðisflokkurinn hefur alls ekki gefist upp á atvinnusköpun og mun hér eftir sem hingað til standa vörð um atvinnufrelsi og uppbyggingu kröftugs atvinnulífs á Íslandi. Uppbygging atvinnulífs er á landsbyggðinni. Það segir hv. þingmaður og undir það tek ég. Verðmætin verða til úti á landi. Þetta veit formaður Miðflokksins mætavel.
Hann talar um að þetta muni fela í sér mikinn kostnað og það er rétt. Þetta mun þýða einhvern kostnað. En kostnaðurinn við að gera ekki neitt er miklu meiri fyrir fyrirtækin í landinu því að sá kostnaður þýðir dauða. Ég hef verið þeirrar skoðunar mjög lengi, eins og ég sagði áðan.
Sjálfstæðisflokkurinn vill byggja upp kröftugt atvinnulíf. Við erum þeirrar skoðunar að atvinnulíf á Íslandi muni ekki vaxa og dafna án þess að sýna ábyrgð í loftslagsmálum, enda sýna kannanir, sem Samtök iðnaðarins hafa gert, að umhverfis- og loftslagsmál skipa æ stærri sess hjá íslenskum fyrirtækjum því að íslenskir atvinnurekendur vilja reka fyrirtæki sín af ábyrgð og í sátt við samfélag sitt og umhverfi. Þau fyrirtæki sem ekki ætla að umfaðma loftslagsvandann og umhverfisvandann verða ekki til eftir tíu ár. Þau munu deyja út. Fólk mun kjósa með fótunum.
Ég ætla að klára þetta í seinna svari mínu.