Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

415. mál
[16:03]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta var svakalegt. Þetta byrjaði sem hefðbundin yfirlýsing, eins og við fáum svo oft að heyra frá hv. þingmönnum meiri hlutans, um að þeir séu að gera eitthvað allt annað en þeir eru að gera. Við erum orðin vön því. Sjálfstæðisflokkurinn standi með atvinnulífinu. Hvað hefur hann gert til þess? Haldið áfram að stækka báknið og flækja kerfið. Gott og vel. En svo kom skýringin á því hvað er að gerast hérna og hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að einhverjir aðrir en þeir sem fjárfesta og lána peninga verði fengnir til að meta í hverju eigi að fjárfesta. Það er vegna þess að hinn kosturinn er dauði.

Það virðist vera að Greta Thunberg sé farin að stýra stefnu þessarar ríkisstjórnar í loftslagsmálum og mati á framtíðinni. Þó að ég hafi áhyggjur af umhverfismálum og loftslagsmálum og hafi oft gert að umtalsefni er heimsendir ekki handan við hornið.

Frú forseti. Heimurinn er ekki að brenna, hann er ekki að farast. Ýmsum bábiljum er haldið fram í tengslum við yfirvofandi heimsendi, eins og ég hef nefnt hér alloft áður. En ef menn raunverulega halda að dauðinn sé handan við hornið og endalok heimsins, þá taka við svona fráleitar ákvarðanir eins og verið er að bera á borð fyrir okkur hér. Kannski veitir ekki af að ríkisstjórnin byrji á því að ná sér niður á jörðina áður en hún fer að bregðast við ímynduðum hamförum.

Varðandi fyrirtæki sem ekki eru til í að aðlagast hinni grænu stefnu eins og Evrópusambandið sér hana, að þau muni bara deyja, þau verði ekki til eftir tíu ár — hvaða skilaboð eru þetta til álveranna, til alls iðnaðar á landsbyggðinni, til alls landbúnaðar á Íslandi? (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Á þetta að vera farið eftir tíu ár af því að það fellur ekki að skilgreiningu Evrópusambandsins á því hvað er grænt?