Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 101. fundur,  2. maí 2023.

Orkuveita Reykjavíkur.

821. mál
[17:23]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur, nr. 136/2013, fyrir hönd atvinnuveganefndar.

Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur sem felur í sér að tilvísun til geymslu koldíoxíðs, CO2, og annarra vatnsleysanlegra gastegunda í jörðu bætist við síðari málslið 2. mgr. 2. gr. laganna þar sem fjallað er um þá starfsemi sem Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélögum er heimilt að stunda. Markmiðið með breytingunni er að tryggja skýra lagaheimild Orkuveitu Reykjavíkur til að eiga hlut í félögum sem tengjast geymslu koldíoxíðs og annarra vatnsleysanlegra gastegunda í jörðu.

Þróun aðferðafræði Carbfix hefur verið álitin tengjast kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur enda dregur hún úr mengun sem stafar frá virkjunum. Að auki var við þróun aðferðarinnar byggt á þekkingu og rannsóknum Orkuveitu Reykjavíkur. Aðferðin hefur því verið talin rúmast innan starfsheimilda Orkuveitunnar og dótturfélags samkvæmt núgildandi lögum en með skýru lagaákvæði þess efnis, eins og frumvarp þetta gerir ráð fyrir, eru tekin af öll tvímæli.

Markmið Carbfix-aðferðarinnar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá stóriðju og öðrum iðnaði og er útbreiðsla hennar talin hafa jákvæð áhrif á umhverfið.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga um Orkuveitu Reykjavíkur er fyrirtækinu heimilt að eiga dótturfélög og eiga hlut í félögum. Verkefni þeirra og heimildir afmarkast af áðurnefndri 2. mgr. 2. gr. laganna sem tilgreinir þau verkefni sem Orkuveita Reykjavíkur og dótturfélög stunda auk þess að tilgreina að önnur verkefni séu heimil sem nýtt geti rannsóknir, þekkingu eða búnað félaga innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur, enda tengist þau kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Starfsemi sem lýtur að Carbfix-aðferðinni var færð í sérstakt dótturfélag með stofnun Carbfix ohf. í lok árs 2019.

Atvinnuveganefnd fjallaði um takmörkun á ábyrgð eigenda Orkuveitu Reykjavíkur á fjárfestingum dótturfyrirtækis síns í umfjöllun sinni og kemur fram í nefndaráliti að ábyrgð hafi verið takmörkuð með því að setja hugverkið, sem nú er í einkaleyfisferli, í dótturfélagið Carbfix ohf. en að áætluð hlutafjáraukning færi inn í dótturfélag opinbera hlutafélagsins. Fjárfestingin eigi ekki að hafa í för með sér ábyrgðir fyrir Orkuveitu Reykjavíkur, eigendur hennar eða Carbfix ohf.

Nefndin er einhuga um afgreiðslu málsins og leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, Stefán Vagn Stefánsson, Ágústa Guðmundsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Inga Sæland, Hanna Katrín Friðriksson, Haraldur Benediktsson, og Þórarinn Ingi Pétursson. Guðný Birna Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk álitinu.