Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 1508, um úrræði til að komast á vinnumarkað, frá Evu Sjöfn Helgadóttur, þskj. 630, um fjölgun starfsfólks og embættismanna, og þskj. 982, um viðbrögð við vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra og sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn ráðuneyta, báðar frá Helgu Völu Helgadóttur, á þskj. 593, um breytingu á fjárhæðum örorkulífeyris, tekjutryggingar og heimilisuppbótar, frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, á þskj. 1296, um langvinn áhrif Covid-19, frá Andrési Inga Jónssyni, á þskj. 1458, um sjóði á vegum ráðuneytisins og stofnana þess, frá Hildi Sverrisdóttur, á þskj. 1485, um uppbætur á lífeyri, frá Guðmundi Inga Kristinssyni, á þskj. 1052, um lögbundið eftirlit og eftirfylgni með réttindum fatlaðra barna, frá Oddnýju G. Harðardóttur, og að lokum á þskj. 1151, um ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku, frá Ásmundi Friðrikssyni.