Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:12]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Ég spjallaði við konu um daginn sem sagði mér frá dóttur sinni sem greindist með ADD fyrir meira en ári síðan. Dóttirin bíður enn eftir að komast að hjá geðheilsuteyminu sem á að veita henni þjónustu. Önnur kona sagði mér nýlega frá syni sínum sem þarf aðstoð talmeinafræðings. Biðlistinn fyrir þann dreng er 2–4 ár; bið sem mun hafa áhrif á líðan þessa stráks stóran hluta skólagöngunnar. Önnur kona sagði mér frá aldraðri móður sinni sem ekki kemst á hjúkrunarheimili en fer reglulega inn á Landspítala þaðan sem hún er send heim um leið og færi gefst. Dóttirin veitir mömmu sinni þá aðstoð sem heilbrigðiskerfið gerir ekki.

Ríkisstjórnin kynnti nýlega heildstæða áætlun um uppbyggingu innviða í heilbrigðiskerfinu til 2030, ofboðslega stórt nafn um að byggja eigi nýtt hús. Allir eru sammála um að það þurfi að byggja nýjan Landspítala, en hvað svo? Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, sagði um daginn, með leyfi forseta:

„Þarna er ekki talað um neina aðra þætti en steinsteypuna við Hringbraut, að það eigi að klára þetta hús.“

Staðan í dag er sirka þessi: Fólk sem þarf á heimilislækni að halda hér á höfuðborgarsvæðinu getur fengið næsta lausa tíma í september. Á landsbyggðinni eru svæði sem útlit er fyrir að verði heimilislæknislaus. Amma og afi liggja inni á Landspítala því að hjúkrunarrými eru ekki til. Börn eru á biðlistum í mörg ár. Fólk sem ekki kemst til heimilislæknisins eða á hjúkrunarheimili fer á bráðamóttökuna. Og hvaða framtíðarmynd erum við að teikna upp fyrir börnin sem ekki komast að hjá geðheilsuteyminu? Biðlistar eru helsta vörumerki íslenska heilbrigðiskerfisins en Ísland á skilið að fá að vera það þjóðfélag sem við segjumst vera; velferðarsamfélag þar sem fólk kemst til læknis án þess að þurfa að vera ríkt, frekt eða tengt.