Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Varða, rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, var að gera grein fyrir niðurstöðum nýrrar könnunar sem gerð var meðal félagsmanna ASÍ og BSRB. Því miður koma niðurstöður þessarar könnunar ekkert sérstaklega mikið á óvart, en þær draga upp dökka mynd af stöðu efnaminnstu fjölskyldnanna á Íslandi. Það sem þær segja okkur líka er að staða þessara hópa fer ekki batnandi heldur fer hún versnandi. Það er í samræmi við niðurstöður kjarakannana sem Efling hefur gert og í samræmi við skýrslu sem Barnaheill birtu síðastliðið haust um stöðu barna og fátækt barna á Íslandi.

Hvað er hér um að tefla, hæstv. forseti? Af þeim sem svara segist tæplega helmingur eiga erfitt með að ná endum saman. Fjárhagsstaða kvenna er verri en karla á öllum mælikvörðum sem prófaðir eru. Fjárhagsstaða einstæðra foreldra er verst meðal vinnandi fólks. Fjárhagsstaða einstæðra mæðra er verri en fjárhagsstaða einstæðra feðra. Þriðja árið í röð mælist staða innflytjenda mun verri en innfæddra Íslendinga. Vinnandi fólk, fullvinnandi fólk á lágum launum, getur ekki greitt leiguna sína, á í miklum erfiðleikum með óvænt útgjöld, getur ekki mætt útgjöldum upp á nokkra tugi þúsunda. Og á meðan við erum að taka þessa punktmælingu, ef svo má að orði komast, í febrúar og mars á þessu ári, þá er verðbólgan enn að mælast 10%. Lágvaxtaskeiðinu svokallaða er löngu lokið og ríkisstjórnin er algerlega verklaus.