Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Það er grafalvarlegt mál þegar kjörnir fulltrúar nýta sér stöðu sína og vettvang til að ala á og kynda undir gróusögur, láta sem þær séu staðreyndir. Hér er ég að tala um sögusagnir af meintri hegðun og atferli flóttafólks í Reykjanesbæ sem notaðar eru til að skauta samfélagið í „við og þau“, þar sem þau eru flóttafólk sem þykir einkar heppilegt að beina hatri að. Sannleikurinn er fyrsta fórnarlambið í slíkri skautun. Undir gróusögurnar er rækilega kynnt, m.a. hér í ræðustól Alþingis af þingmönnum til að upphefja sig á kostnað þeirra sem veikt standa og eflir hatur í þeirra garð. Í nýjasta tölublaði Heimildarinnar er vönduð úttekt á þessu og ganga blaðamenn í það að kanna sannleiksgildi sögusagnanna sem alþingismennirnir hefðu sjálfir betur gert áður en þeir básúnuðu fordómana. Úttekt Heimildarinnar sýnir að nánast allar sögusagnirnar virðast byggðar á sandi en það skiptir í raun engu í augum þeirra sem sjá sér leik á borði í lýðskrumi. Til dæmis flutti hv. þingmaður héðan úr pontu Alþingis fullyrðingu um að íbúum hefði verið hent út úr blokk í Reykjanesbæ og á götuna til að rýma fyrir flóttafólki. Þegar blaðamenn bentu honum á að sagan hefði reynst röng svaraði þingmaðurinn að hann væri að bergmála það sem honum var sagt og að hann hefði ekki tíma til að gá hvort fólk væri raunverulega á götunni. Þetta er ekki boðlegt, hæstv. forseti. Þessu verður að linna.