Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í dag bárust fréttir af því að Ísland dettur niður um þrjú sæti á milli ára á lista þar sem fjölmiðlafrelsi er mælt af samtökunum Blaðamenn án landamæra. Ísland er nú í 18. sæti en önnur Norðurlönd raða sér í efstu sæti listans. Ísland hefur verið að þokast niður þennan lista undanfarinn áratug og það gefur auðvitað augaleið að við eigum ekki að sætta okkur við þetta, ekki síst þegar haft er í huga að fyrir 13 árum vorum við í toppsætinu og fyrir 11 árum í 2. sæti. Við hljótum öll að hafa þann metnað að reyna eins og kostur er að tryggja að fjölmiðlar séu eins sterkir og mögulegt er til þess að þeir geti veitt stjórnvöldum hverju sinni og samfélaginu öllu aðhald og upplýst fólk um það sem máli skiptir.
Við þekkjum öll hversu slæm fjárhagsstaða íslenskra fjölmiðla er. Við vitum að þeir eru fáliðaðir og það er margt hægt að laga í starfsumhverfi þeirra til að bregðast við. En það skiptir líka máli í þessu samhengi að þeir hafi aðgang að upplýsingum og að laga- og regluverkið hér geri þeim ekki erfitt fyrir í upplýsingaleitinni og aðhaldshlutverki sínu.
Fyrr í vetur vakti talsverða athygli að í einu stærsta fíkniefnamáli sem upp hefur komið hérlendis gátu fjölmiðlar ekki greint frá því í sjö vikur sem sakborningar eða vitni í málinu sögðu í þessu réttarhaldi sem þó var opið almenningi. Dómari í málinu bannaði frásagnir með vísan í lög þar til öllum skýrslutökum væri lokið og þær tóku þessar sjö vikur. Þessi lagatúlkun dómarans þótti umdeild og þetta var gagnrýnt mjög af fjölmiðlum og fleirum.
Þessu vill þingflokkur Viðreisnar breyta og síðar í dag mæli ég fyrir frumvarpi sem tryggja á að bann dómara við samtímafrásögn úr dómsal gildi aðeins á meðan skýrslutaka hvers aðila eða vitnis stendur yfir og nái ekki yfir lengra tímabil. Þannig er unnt að koma í veg fyrir sakaspjöll án þess að takmarka aðgengi fjölmiðla og almennings meira en þörf er á að þeim upplýsingum sem fram koma í réttarsal og á þeim upplýsingum eigum við jú öll rétt á. Frumvarpið gætir þannig betur að frelsi fjölmiðla og styður við mikilvægi þess í opinni og lýðræðislegri umræðu.