Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:30]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Nýverið vakti hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir athygli á áformum um sölu á fjarskiptainnviðum sem nú hafa verið samþykkt af meiri hluta borgarstjórnar með hlutafjáraukningu Ljósleiðarans. Til stendur að fá einkaaðila að borðinu. Aðeins Vinstri græn og Sósíalistaflokkurinn í borginni hafa andmælt þessum áformum. Hingað til hefur Samfylkingin, sem leiðir borgarstjórn, talað fyrir því að þjóðhagslega mikilvægir innviðir eigi að vera í eigu þjóðarinnar. Ljósleiðarinn er fyrirtæki sem tryggir að heimili og fyrirtæki í landinu hafi aðgang að interneti. Við sem þjóð verðum að geta treyst því að hafa aðgang að traustum háhraðanettengingum á verði sem öll ráða við. Með því að einkavæða grunnþjónustu aftengjum við um leið lýðræðislega aðkomu. Það er hlutverk opinberrar þjónustu að tryggja jafnan aðgang. Slíkt er ekki hægt að tryggja í einkageiranum.

Hingað til hafa félagshyggjuflokkarnir í borginni staðið saman á móti öllum slíkum hugmyndum en mér þykir ljóst að um er að ræða stefnubreytingu hjá Samfylkingunni í þessum efnum. Við Vinstri græn höfum alltaf lagt mikla áherslu á að íslenska ríkið styrki innviði sína í tæknibyltingunni og fyrir okkar tilstuðlan hafa verið stigin stór skref í þá átt, en árið 2019 keypti ríkissjóður Farice, sem rekur gagnastrengina Farice og Danice. Farice er núna að fullu í eigu íslenska ríkisins og það gerðist á vakt Vinstri grænna sem og að þriðji strengurinn var lagður. Þar var um að ræða stafræna innviðafjárfestingu til að tryggja örugg og áreiðanleg fjarskipti hér á landi og skapa forsendur fyrir því að Ísland stígi stærri skref í stafrænum heimi með almannahagsmuni að leiðarljósi. Þetta er auk þess brýnt þjóðaröryggismál. Í mínum huga sýnir þetta svart á hvítu á hvaða leið Samfylkingin er því, virðulegur forseti, í þingræðum við umræðu um sölu Símans á annarri gagnaveitu, Mílu, fóru þingmenn Samfylkingarinnar mikinn um þjóðhagslega mikilvæga innviði. Hér er augljóslega um stefnubreytingu að ræða eða eru fulltrúar Samfylkingarinnar hér á þingi og í borginni ekki sammála um hvað eru þjóðhagslega mikilvægir innviðir? (LE: Við erum líklega ekki jafn stefnuföst og þið í stjórnarsamstarfinu. )