Störf þingsins.
Herra forseti. Ég var á fundi á dögunum með íbúum Alaska sem lýstu því með áhrifamiklum hætti hver loftslagsáhrifin þar hafa orðið síðastliðin tíu ár með skógareldum, landrisi sums staðar, hærri sjávarstöðu annars staðar og ofsaveðrum. Þeim finnst eins og enginn muni eftir þeim og að okkur hinum, sem með lifnaðarháttum okkar höfum valdið hamförunum, finnist óþægilegt að vita hvað gengur á á norðurslóðum. Loftslag á norðurslóðum hefur hlýnað fjórfalt hraðar en annars staðar á jörðinni. Það er vegna þess að snjór og ís sem endurvarpar sólarljósi bráðnar. Jöklar eiga eftir að bráðna hraðar og það mun leiða til hækkandi sjávarstöðu og hafa áhrif á alla jarðarbúa. Ef Grænlandsjökull einn bráðnar þýðir það 6 metra hækkun sjávarmáls. Þessar hröðu breytingar eru af mannavöldum og hafa afgerandi áhrif á lífríki og byggðarlög á norðurslóðum. Bráðnun jökla og sífrera hefur víðtæk áhrif á lífríki sjávar og lands og á allan heiminn. Afleiðingarnar eru hnattrænar og keðjuverkandi enda vistkerfi jarðarinnar samofið. 99% allra vísindagreina um málið sýna að brennsla jarðefnaeldsneytis hitar jörðina. Gróðurhúsalofttegundir eru vissulega þar aðeins einn þáttur en sá mikilvægasti og sá þáttur sem við getum haft áhrif á. Næstu fimm til tíu ár skipta sköpum fyrir mannkynið og vistkerfi jarðar. Ríkustu 10% eru ábyrg fyrir helmingnum af allri losun gróðurhúsalofttegunda en afleiðingarnar koma harðast niður á fátækum þjóðum. Þannig er baráttan gegn hamfarahlýnun óaðskiljanleg baráttu gegn ójöfnuði og ábyrgð ríkra þjóða er mikil. Hlýnun jarðar mun valda meiri hamförum (Forseti hringir.) ef aðrar þjóðir gera eins og við Íslendingar undir forystu Vinstri grænna; (Forseti hringir.) auka losun gróðurhúsalofttegunda með máttlausum loftslagsaðgerðum sem lítið gagn gera. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)