Störf þingsins.
Herra forseti. Mikið álag hefur verið á slökkviliðsmönnum undanfarna daga. Stórbruni var í Hafnarfirði, eldur í skipi í Sandgerði og eldur í skipi í Njarðvík þar sem einn skipverji lést og annar slasaðist alvarlega. Eldsvoðar í skipum eru sérstaklega hættulegir og í Njarðvík voru þrír slökkviliðsmenn Brunavarna Suðurnesja hætt komnir við störf sín. Slökkviliðsmenn eru útsettir fyrir starfsumhverfi sem vísindalega hefur verið sannað að eykur líkur á heilsubresti. Þannig eru slökkviliðsmenn allt að tvöfalt líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameina samkvæmt rannsóknum. Þrátt fyrir miklar forvarnir og betri útbúnað slökkviliðsmanna við slökkvistörf eiga þeir aldrei möguleika á að verja sig fullkomlega gegn krabbameinsvaldandi efnum í reyk sem myndast við bruna. Í Kanada, Bandaríkjunum og Ástralíu eru um 15 tegundir af krabbameini skilgreindar sem atvinnusjúkdómar hjá slökkviliðsmönnum.
Herra forseti. Fyrir tveimur árum flutti ég hér í þingsal breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga. Lagði ég til hvaða gerðir krabbameina skuli teljast bótaskyldir atvinnusjúkdómar hjá slökkviliðsmönnum. Tillagan var felld hér í þingsal. Ráðherra gat þess hins vegar að horft yrði til þessa í reglugerð og því væri breytingartillagan óþörf. Reglugerðin leit síðan dagsins ljós tveimur árum síðar. Í stuttu máli er niðurstaðan þessi: Ekkert er minnst á slökkviliðsmenn, ekkert er fjallað um hvort og þá hvaða starfsstéttir geti hugsanlega verið útsettari fyrir því að greinast með sjúkdóma vegna starfsumhverfis. Þetta eru kaldar kveðjur, herra forseti, til slökkviliðsmanna sem hætta lífi sínu í þágu borgaranna. Ég skora hér með á hæstv. heilbrigðisráðherra að tryggja að krabbamein verði viðurkennt sem atvinnusjúkdómur slökkviliðsmanna.