Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

415. mál
[15:39]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er óhemju galið og skaðlegt mál. Það er í andstöðu við frjálst markaðshagkerfi. Það felur í sér gríðarlegar kerfisflækjur, stækkun báknsins, mikinn kostnað fyrir fyrirtæki og almenning. Það stuðlar að aukinni óhagkvæmni og skertri verðmætasköpun, heftir atvinnuuppbyggingu og í því felst líka refsigleði og eftirgjöf valds frá íslensku samfélagi til stýrinefnda í Brussel. Það er ekki alveg ljóst hvenær Sjálfstæðisflokkurinn gafst upp á markaðshagkerfinu en með samþykkt þessa frumvarps er það staðfest.