Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

tónlistarstefna fyrir árin 2023--2030.

689. mál
[15:43]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um tónlistarstefnu Íslands. Stefnunni er ætlað að styðja við tónlist sem listgrein, tónlistarfólk og aðra sem starfa við tónlist. Eins og kom fram í máli hv. þm. Ingu Sæland hér áðan þá kom fram breytingartillaga frá hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni og komu þar fram tvö markmið; annars vegar markmið um að stuðla að þátttöku fatlaðs fólks í menningarlífi og listum og hins vegar að gerð verði úttekt á starfsumhverfi tónlistarfólks til að finna leið til að bæta lífsafkomu þess og efla listgreinar. Þessi breytingartillaga er til bóta og ég legg til að við styðjum hana. Hv. allsherjar- og menntamálanefnd þakka ég fyrir vinnunna. Ég tel að í dag munum við stíga mjög stór skref fyrir íslenskt menningarlíf.