Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

tónlistarstefna fyrir árin 2023--2030.

689. mál
[15:45]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Þetta er mikill gleðidagur í dag þar sem við erum að samþykkja þessa stefnu. Þessi stefna fyrir tónlistina er löngu tímabær. Ég vil þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir sérstaklega góð störf, en stefnan er liður í því að efla hinar skapandi greinar á Íslandi. Við erum núna að taka upp stefnur fyrir hverja einustu grein; tónlistina, myndlistina, hönnunina, og allt á þetta að mynda eina heild þar sem við verðum í sókn fyrir þessar greinar. Þær skapa útflutningstekjur. Unga fólkið okkar vill vera þarna. Þannig að ég er mjög ánægð með þetta skref sem við erum að taka.