meðferð einkamála og meðferð sakamála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir þetta andsvar og spurningu sem til mín er beint. Nú er það auðvitað þannig að tæknin er á fleygiferð og þetta er allt saman gjörbreytt frá því sem við þekkjum. Það var einmitt þess vegna sem lagabreytingin var gerð árið 2019, henni var ætlað að bregðast við tæknibreytingum öllum. Við getum ekki vikið frá þessari meginreglu um opið þinghald eins og ég var að rekja. Bæði er þetta auðvitað í stjórnarskránni og við hljótum öll að vilja standa vörð um þessa meginreglu.
Þegar hins vegar tæknin er orðin eins og hún er þá er það auðvitað spurningin: Hvernig ætla menn að bregðast við? Ætla menn að bregðast við með því að ganga með einhverjum hætti á þessa meginreglu sem við viljum standa vörð um? Eða ætla menn einfaldlega að játa það að tímarnir séu breyttir og það þurfi þá kannski að beita einhverjum öðrum úrræðum? Í þessu tiltekna máli finnst okkur flutningsmönnum að dómari hafi þarna gengið allt of langt, hafi túlkað lagagrein með hætti sem ekki átti að gera. Það var ekki ætlun löggjafans að gera þetta með þessum hætti. Hvernig getum við bæði haft þinghaldið opið og komið í veg fyrir sakarspjöll með þeim hætti sem var verið að nefna? Væntanlega væri auðveldara að gera einhverjar ráðstafanir til þess að þeir sem ekki mega hlýða á vitnisburð gætu ekki hlýtt á hann og þeir einir mættu þá ekki fylgjast með frekar en að við færum í að loka heilu þinghaldi eða banna fjölmiðlum að flytja fréttir svo vikum skiptir.
Þetta eru álitaefni sem við stöndum frammi fyrir og ég er algerlega sannfærður um það að við þurfum frekar að fara í þá átt að reyna að takmarka sem minnst með því að koma í veg fyrir að vitni og sakborningar geti með einhverjum hætti hlustað á það sem fram kemur í rauntíma frekar en að ganga svo langt að banna fréttaflutning. Því eins og ég var að nefna hér sem dæmi í ræðunni áðan gat þetta bann dómarans ekki komið í veg fyrir þau sakarspjöll sem því var þó ætlað að reyna að koma í veg fyrir.