meðferð einkamála og meðferð sakamála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að við eigum einmitt að virða þessa meginreglu að hafa opið þinghald. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort ekki sé bara kominn tími á það, til þess að auka traust og gagnsæi í framkvæmd dóma hér á landi, að við einfaldlega streymum öllu sem gerist í dómsölum nema auðvitað í þessum fáu undantekningartilvikum sem er lokað þinghald. Eigum við ekki bara að hafa dómstólarásina eins og Alþingisrásina? Væri það ekki til þess fallið að kannski auka traust á dómskerfið, sem er nú ekki mjög hátt, og kannski fyrir fólk að átta sig betur á því hvernig staðan er í ýmsum málum varðandi það hvernig rannsókn fer fram og ýmislegt annað sem orsakar þá að fólk fær kannski meira traust á þá aðila sem eru að sinna þeim hlutum? Þetta tíðkast í mörgum ríkjum í Bandaríkjunum t.d. og mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort hann teldi að það væri næsta skref.