meðferð einkamála og meðferð sakamála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir síðara andsvarið. Þessi spurning er auðvitað bara mjög áleitin og hv. þingmaður benti á að sums staðar gerist þetta í öðrum löndum. Við þekkjum þetta í Bandaríkjunum þar sem eru beinar útsendingar beinlínis úr réttarsal. Það að þinghaldið sé opið þýðir fræðilega að öll íslenska þjóðin, ef það væri húsrúm, gæti verið á staðnum og fylgst með réttarhaldinu. Opið þinghald þýðir það að hver sem er, á meðan húsrúm leyfir, getur verið þarna og fylgst með þannig að það er auðvitað ætlunin. Væri það mikill eðlismunur að sýna beint í einhvers konar streymi? Ég er ekkert endilega viss um að það sé gríðarlegur eðlismunur á því ef þinghaldið á annað borð er opið. Þannig að mér finnst þetta svo sannarlega vera hugmynd sem vel er hægt að velta fyrir sér.
Nú skal ég alveg játa það að ég þykist vita að það sé ákveðið tregðulögmál inni í kerfinu og menn geti fundið einhver rök sem hníga gegn því að það ætti ekki að streyma í beinni útsendingu því sem verið er að segja í réttarsalnum, en þá aftur: Réttarhaldið er opið. Það getur hver sem er komið og fylgst með. Ástæðan fyrir því að réttarhaldið er opið og hver sem er á að geta fylgst með er einmitt sú að það þykja mjög mikil verðmæti í því að það sé opið og að fólk geti þá sjálft lagt mat á það sem þarna fer fram, séð það hvernig lögreglurannsókn hefur gengið fyrir sig, hvernig ákæruvaldið hefur unnið sitt starf og síðan auðvitað hvernig síðan dómsmálið sjálft er rekið. Þannig að mér finnst það auðvitað bara að sjálfsögðu koma vel til greina. Ég er almennt þeirrar skoðunar að því opnara sem allt er, sem tilheyrir ríkisvaldinu og hinu opinbera , þar sem er verið að fjalla um réttindi borgaranna með einum eða öðrum hætti, því betra.