Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

141. mál
[18:42]
Horfa

Flm. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi um að ríkisstarfsmenn fái að vinna til 73 ára aldurs vilji þeir gera það. Þetta mál er lagt fram í sjötta sinn. Þorsteinn Sæmundsson, fyrrverandi þingmaður, barðist lengi fyrir því að ná þessu máli í gegn og svo kom að því að málinu var vísað til ríkisstjórnar, þ.e. þingið samþykkti eftir tvær umræður að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar til úrvinnslu. Síðan eru liðin ja, líklega um fimm ár og ekkert hefur gerst. Fyrir vikið er nú mælt fyrir þessu í sjötta sinn. Fyrir því eru ýmsar ástæður að þetta hljóti að teljast æskileg breyting. Þjóðin eldist, meðalaldur þjóðarinnar hækkar en meðalaldur einstaklinga, líftími, hækkar líka og fólk er jafnan sprækara og hraustara lengur en áður var; mikil breyting hvað það varðar bara á fáeinum áratugum.

Árið 2016 voru samþykkt lög um svokölluð sveigjanleg starfslok. Þetta voru lög nr. 116/2016, eftir góða tímann, frú forseti, við stjórn landsins, en samkvæmt þeim mátti hafa starfslok sveigjanleg eða frá 65–80 ára aldurs á almennum vinnumarkaði en þetta náði ekki til ríkisstarfsmanna. Fyrir því voru ýmsar ástæður á þeim tíma að þetta var ekki tekið saman, enda byggist það á ólíkum lögum. En hér er sem sagt lagt til að breyting verði gerð á lögum um opinbera starfsmenn frá 1996 og þar með fái ríkisstarfsmenn heimild til að vinna lengur en til sjötugs. Fram að þessu hafa menn verið neyddir til að hætta störfum sjötugir, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Þetta hefur reynst mörgum erfitt, fólki í fullu fjöri sem hefur langað að halda áfram að vinna og þetta hefur líka oft og tíðum verið erfitt fyrir vinnuveitandann, þær stofnanir sem viðkomandi hafa starfað fyrir.

Hvers vegna 73 ár? kunna einhverjir að spyrja. Við töldum eðlilegt að byrja á því að stíga það skref. Það væri nokkuð augljóst að meira og minna allir ættu að geta verið sammála um að stíga það skref og sjá hvernig það reynist. Eins og þekkt er njóta ríkisstarfsmenn nokkurra réttinda hvað starfsöryggi varðar umfram þá sem starfa á almennum vinnumarkaði. En ég ítreka að hér er ekki um að ræða skyldu til að vinna lengur, eingöngu heimild sem mun ekki fela í sér neina skerðingu fyrir þá sem ákveða að hætta að vinna sjötugir. Kostirnir við þetta eru fjölmargir. Þeir sem ákveða að vinna lengur geta þá augljóslega haft tekjur lengur og það skilar tekjuskatti lengur til ríkisins en ekki síður mikilvægt er að með þessu má vernda þekkingu og reynslu sem fólk hefur byggt upp á áratugum og er mjög verðmæt fyrir vinnuveitandann, fyrir ríkið, ríkisstofnanirnar.

Mér er hugsað til kennara á Laugum sem ég hitti fyrir ekki svo mörgum árum síðan sem var gríðarlega vinsæll kennari þar. Hann langaði að halda áfram og allir vildu hafa hann áfram. Skólinn taldi sig þurfa á því að halda en mátti það ekki, mátti ekki hafa þennan vinsæla og góða og fróða kennara í vinnu áfram. Ef ríkisstjórnin hefði klárað verkefnið sem þingið fól henni á sínum tíma þegar samþykkt var að vísa þessu til úrvinnslu hjá ríkisstjórn þá hefði þessi kennari getað haldið áfram störfum og allir verið ánægðir.

Þetta getur líka haft mjög jákvæð áhrif á heilsu einstaklinga, bæði líkamlega og andlega heilsu, dregið úr hættunni á einangrun. Það reynist mörgum erfitt að hætta að vinna fyrr en þá langar að ljúka störfum og svo sem þekkt að allt of margir lenda í því að heilsu, ekki hvað síst andlegri heilsu, fari að hraka þegar starfsferli lýkur, sérstaklega þegar menn þurfa að hætta án þess að vilja það. Það mætti hugsa sér að einhverjir gætu til að mynda viljað starfa áfram í hlutastarfi. Að vísu hefur í einhverjum tilvikum verið notast við verktakafyrirkomulag eftir að menn hafa náð 70 ára aldri en það hefur reynst vera snúið fyrirkomulag, bæði fyrir vinnuveitandann og starfsmanninn.

Þetta mál sem, eins og ég nefndi hér í byrjun, er lagt fram í sjötta sinn, hefur almennt fengið mjög jákvæðar viðtökur, bæði í þinginu og til að mynda hjá Félagi eldri borgara sem hefur fjallað um það í fyrri tilvikum og tekið vel í þetta. Þegar þetta hefur náð til nefndar þá hefur nefndarvinna gengið bara prýðilega og eins og ég segi, viðtökurnar almennt góðar en svo kom að því að allir sættust á að fela ríkisstjórninni að leysa úr þessu. Ég tel, frú forseti, fyrst ég hef tíma til, ástæðu til, svona í varnaðarskyni, að lesa svarið sem kom frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um afdrif málsins. Þetta er frá árinu 2019, þá barst þetta svar. Yfirskriftin er: Framkvæmd ekki hafin.

„Efnahags- og viðskiptanefnd vísaði því til ríkisstjórnar að framkvæma heildstæða endurskoðun á lögum og reglum um starfslokaaldur í samráði við bandalög opinberra starfsmanna auk fleiri aðila sem kunna að hafa hagsmuna að gæta í tengslum við málið. Eins og fram kemur í nefndarálitinu eru flestir umsagnaraðilar hlynntir því að endurskoða ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, sem fjalla um hámarksaldur starfsmanna ríkisins. Sjónarmið sem búa þar að baki og tillögur um breytingar eru aftur á móti af ólíkum meiði. Ekki hefur auðnast að hefja þessa vinnu. Tilefni kann að vera til að leggja mat á hvort endurskoða þurfi fleiri greinar laganna og jafnvel lögin í heild sinni.“

Nú þegar það eru liðin um fimm ár frá því að þessu var vísað til ríkisstjórnar hefur ekki enn auðnast að hefja vinnuna eins og getið var um þarna strax á árinu 2019. Því er mælt fyrir þessu góða máli, tiltölulega óumdeilda máli, jákvæða máli fyrir alla, í sjötta sinn og nú vona ég, frú forseti, að það fái greiða leið hér í gegnum þingið og verði loksins að lögum. Að því sögðu legg ég til að málinu verði sem fyrr vísað til efnahags- og viðskiptanefndar.