Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

leyfisskylda og eftirlit með áfangaheimilum.

546. mál
[19:08]
Horfa

Flm. (Jódís Skúladóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um leyfisskyldu og eftirlit með áfangaheimilum. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela félags- og vinnumarkaðsráðherra að undirbúa lagasetningu um leyfisskyldu og eftirlit með rekstri áfangaheimila, skilgreiningu þeirra og hlutverk.“

Mig langar að fjalla aðeins um ástæður þess að tillaga þessi er fram komin. Hvað er áfangaheimili? Hugtakið vísar til tímabundins heimilis fólks með fjölþættan vanda sem starfrækt er með það að markmiði að stuðla að endurhæfingu þess í kjölfar dvalar á meðferðar- eða endurhæfingarstofnun eða í fangelsi. Eðli máls samkvæmt er því um að ræða sérstaklega viðkvæman hóp einstaklinga sem á sér fáa málsvara í samfélaginu.

Frú forseti. Það er einfaldlega þannig að í gildandi lagaumhverfi er hvergi kveðið á um leyfisskyldu eða eftirlit með rekstri og umsjón áfangaheimila. Þá eru engin lagaákvæði sem kveða á um heimild ráðherra til að setja eftirlit með þeim í reglugerð. Orðskýringar er að finna í 3. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, og í 3. mgr. 2. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994. Þrátt fyrir ágæti þeirra skilgreininga taka þær ekki til starfshátta, leyfisskyldu og eftirlits. Í skjóli þess er unnt að reka ýmsa starfsemi undir þessu heiti án sérstaks eftirlits eða leyfis.

Öryggissérfræðingar hafa bent á að mun minni kröfur séu gerðar til húsnæðis sem einkaaðilar nota sem áfangaheimili en til úrræðis sem er á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Í sögulegu samhengi hefur eftirlit með úrræðum til handa fólki með fjölþættan vanda verið ábótavant. Í mörgum tilfellum hefur það varðað við lög vegna misneytingar og ofbeldis gagnvart skjólstæðingum. Hér á landi er umtalsverður fjöldi áfangaheimila. Rekstur þeirra er ýmist á höndum hins opinbera eða einkaaðila, svo sem sjálfseignarstofnana, félagasamtaka eða einstaklinga. Mörg þeirra eru rekin á trúarlegum forsendum og eru liður í eftirfylgni áfengis- eða vímuefnameðferðar. Leyfisveitingar og eftirlit með þeim er frábrugðið því sem almennt gerist í heilbrigðis-, velferðar- og félagsþjónustu. Almennt er viðtekið að ábyrgðaraðili þjónustunnar setji reglur um eftirlit og eftirfylgni með henni sjálfur. Í ljósi umræðu um alvarlega stöðu fólks með fíknivanda, hvar við erum að færa okkur nær skaðaminnkandi nálgun, er mjög mikilvægt að sú nauðsynlega endurhæfing sem fylgir í kjölfar meðferðar sé tryggð í öruggu umhverfi með faglegu eftirliti. Nýleg dæmi eru um áfangaheimili í þágu fólks með fíknivanda, þar sem tilfinnanlegur skortur var á eftirliti með aðbúnaði, hreinlæti og öryggi. Í ljósi þess að brotalöm er á opinberu eftirliti með starfsemi áfangaheimila og ekki skýrt regluverk í kringum það hver má stofna til slíkra úrræða eru takmarkaðar kröfur gerðar til ábyrgðaraðila um rekstur þeirra.

Mikilvægt er að starfsemi áfangaheimila hafi skýr markmið, hvert sem úrræðið er og til staðar séu fagleg, gagnreynd vinnubrögð og verkferlar sem stuðli að endurhæfingu. Opinbert eftirlit og leyfisskylda sem knýr á um fagleg vinnubrögð, viðveru þar til menntaðs heilbrigðisstarfsfólks sem og félagslegrar ráðgjafar, hreinlætis, öryggis og aðbúnaðar eru lykilatriði. Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að sá hópur fólks sem sækir þjónustu áfangaheimilis er iðulega í viðkvæmri stöðu og glímir oft við þann fjölþætta vanda sem áður var nefndur. Hópurinn sem nýtir úrræðin er fjölbreyttur og því þurfa úrræðin að endurspegla þær þarfir. Með hliðsjón af því þarf að fara fram þarfagreining á milli hópa svo að lögin endurspegli sem best ólíka þjónustuþörf þeirra sem kunna að nýta sér þá þjónustu sem veitt er á áfangaheimilum. Í mörgum tilfellum er heimilisleysi í kjölfar neyslu og geðrænna áskorana hluti þess vanda sem fólk er að takast á við, en heimilisleysi er mun algengara meðal fólks með fjölþættan vanda. Mikilvægt er því að tryggja húsnæðisúrræði vegna endurhæfingar á breiðari grunni en áður hefur þekkst og að úrræði séu af fjölbreyttum toga. Af því myndi hljótast almenn velsæld meðal þjónustuþega.

Það er mat þeirra sem standa að þessari tillögu að óásættanlegt sé í íslensku samfélagi að fíknisjúkdómar útiloki fólk frá sjálfsögðum mannréttindum, heilbrigðisþjónustu og úrræðum til að takast á við vanda sinn. Vímuefnaneysla er oftar en ekki ásteytingarsteinn sem kemur í veg fyrir að fólk með fíknisjúkdóma njóti ýmissa réttinda. Útskúfun og aðstöðuleysi eykur á vanda fólks og hættu á heimilisleysi. Meðal þeirra áskorana sem samfélagið stendur frammi fyrir vegna húsnæðishraks einstaklinga er slæm heilsa, útskúfun og fleira sem ýtir undir vandann. Aðgengi að faglegri þjónustu sem er til staðar á áfangaheimili er skaðaminnkandi og getur leitt til bættra lífsgæða fólks með fíkni- og fjölþættan vanda. Í málaflokknum í heild er gagngerrar endurskoðunar þörf. Greina þarf hvaða starfsemi fellur í dag undir áfangaheimili. Móta þarf ramma utan um hvaða starfsemi er eðlilegt að falli þar undir og hvert markmið hennar eigi að vera. Eðlilegt fyrirkomulag er að velferðarþjónusta sem þessi verði lögboðin og sæti opinberu eftirliti. Þörfin er brýn og knýr á um skýrar leikreglur. Mikilvægt er að eftirlit vegna útvistunar þjónustunnar í gegnum þjónustusamninga lúti sömu lögmálum og ef um opinbera aðila er að ræða. Þá vill flutningsfólk þessa máls árétta mikilvægi þess að skilgreina þá starfsemi sem fellur undir leyfisskyldu svo ekki sé neinum vafa undirorpið til hvers konar starfsemi er vísað. Jafnframt er vísað til þeirrar ábyrgðar að stjórnvöld hafi eftirlit með lögbundinni þjónustu, svo sem heilbrigðis- og félagsþjónustu sem við á hér. Þetta er réttaröryggismál fyrir einstaklinga sem nýta slík úrræði.

Mig langar að nefna sérstaklega að undanfarið hefur verið mikið í umræðunni sú skelfilega staða sem er í samfélaginu þegar kemur að fíknisjúkdómum; ópíóíðafaraldur, langir biðlistar og of fá úrræði. Hvort sem við horfum til fólks sem er í neyslu eða fólks sem er að hætta í neyslu þá þarf þjónusta við þessa einstaklinga að vera í lagi og undir eftirliti ríkisins, eins og öll önnur heilbrigðisþjónusta. Mér finnst sérstaklega átakanlegt að hugsa til þess hversu mörg ungmenni eru nú í þessari skelfilegu stöðu. Eitt af því sem áfangaheimilin bjóða upp á er þetta örugga umhverfi sem endurhæfing eftir meðferð þarfnast. Það er ekki þannig með fíknisjúkdóma að til sé ein einföld lausn sem hentar öllum óháð kyni, aldri og stöðu í samfélaginu. Við þurfum miklu fjölbreyttari úrræði og verðum að geta mætt fólki þar sem það er statt og á áfangaheimilum á fólk að eiga öruggt skjól sem við treystum á er varðar aðra heilbrigðisþjónustu. Við treystum því ef við erum með aðra sjúkdóma, hjartasjúkdóma og hvað sem það er, hvort sem börn eða fullorðnir eiga í hlut, að við fáum örugga þjónustu, þá bestu sem í boði er hverju sinni og byggist á gagnreyndum klínískum rannsóknum, en ekki að hver sem er geti boðið upp á hvaða þjónustu sem er án eftirlits. Það er auðvitað galið og því er löngu tímabært að við förum í þessa vinnu. Ég bind miklar vonir við að þetta mál nái fram að ganga. Ég hef lokið máli mínu en veit að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra mun fylgja þessu máli til enda sé það vilji þingsins.