varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar, um að Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykv. s., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því tekur Vilborg Kristín Oddsdóttir sæti á Alþingi, en hún er 3. varamaður á lista flokksins í kjördæminu og víkur þá 2. varamaður á lista, Viðar Eggertsson, af þingi en 1. og 2. varamaður hafa boðað forföll.
Einnig hefur borist bréf frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, 7. þm. Suðvest., um að hún verði fjarverandi á næstunni. Því tekur 2. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Indriði Ingi Stefánsson, sæti á Alþingi en 1. varamaður hefur boðað forföll.
Indriði Ingi Stefánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.
Landskjörstjórn hefur gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Vilborgar Kristínar Oddsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hennar.