Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

samkomulag við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um byggingu íbúða .

[15:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra varðandi það samkomulag sem gert var milli m.a. hæstv. ráðherra og ráðuneytis hans, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar 12. júlí 2022 þar sem römmuð voru inn áform um að byggja 35.000 íbúðir á næstu tíu árum, 4.000 íbúðir á ári fyrstu fimm ár samkomulagstímans, 3.500 íbúðir á ári seinni fimm árin. Það hafa verið haldnir ansi margir fundir þar sem því hefur verið flaggað að verið sé að vinna að framgangi þessara markmiða og þessa samkomulags. En svo ber við að í umsögn um fjármálaáætlun lýsir Samband íslenskra sveitarfélaga því að um sé að ræða fullkominn forsendubrest hvað ákveðinn hluta þessa samkomulags varðar og í síðustu viku, þann 4. maí, birtu Samtök iðnaðarins greiningu þar sem var m.a. sagt frá niðurstöðu sem unnin var á meðal verktaka sem byggja íbúðir á eigin reikning og endurselja. Verktakarnir sjá fram á 65% samdrátt hvað varðar uppbyggingu nýrra íbúða næstu 12 mánuði samanborið við 12 mánuðina á undan. Allt þetta dregur upp mjög hryggðarlega mynd af þessum áformum, því miður. Ágúst Bjarni Garðarsson, hv. þingmaður Framsóknarflokksins, var í spjallþættinum Sprengisandi, held ég, um helgina þar sem hann lýsti því að sveitarfélög utan Reykjavíkur væru orðin til þess að gera landlaus hér á höfuðborgarsvæðinu til nýrrar uppbyggingar. Með þetta allt saman í huga, og í ljósi þess að um 5.000 hælisleitendur hafi komið árlega, á síðasta ári og þessu, sem þurfi þak yfir höfuðið, spyr ég hæstv. innviðaráðherra: Þegar heildarmyndin er skoðuð hvernig sýnist hæstv. ráðherra þetta verkefni ganga?