Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

samkomulag um byggingu íbúða.

[15:22]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hann málaði nokkuð dökka mynd, gæti einhver sagt, af ástandinu en ég held að hún sé því miður nokkuð trúverðug. Það er fordæmalaus fjölgun á landinu, hefur verið nú um alllangt skeið, um 1.000 manns á mánuði. Þegar þessar grunnliggjandi upplýsingar sem við vorum að byggja á komu fram, þ.e. húsnæðisáætlanir sveitarfélaganna sem við erum nú búin að gera rafrænar, og eru þar af leiðandi „up to date“ ef maður slettir hér í ræðustóli Alþingis, eins mikið og hægt er, og síðan mat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þá þyrfti 35.000 íbúðir. Mér kæmi ekkert á óvart að í næsta endurmati, ef þessi fjölgun heldur áfram, þurfi fleiri íbúðir. Það gerir vandann ekki minni en það gerir heldur ekki þá stöðu minna virði, skulum við segja, að loksins ætlum við að hafa einhverja sýn og stefnu í þessum málum, sem við höfum aldrei haft. Hingað til hefur markaðurinn ráðið för um það og sveiflurnar hafa verið óendanlegar. Við erum að reyna að stíga hér inn með opinbera sýn, sameiginlega með sveitarfélögunum, af því að það þarf lóðir og það hefur kannski verið eitt af vandamálunum. Hv. þingmaður nefnir þá staðreynd að sum byggðarlögin hér eru orðin aðþrengd með land. Þess vegna er jákvætt að sjá þróunarfélagið uppi á Keldum og Keldnaholti, þróunarfélagið uppi á Blikastaðalandi sem myndu geta byggt ansi margar íbúðir. Ég bind vonir við það að því fleiri fundi sem við höldum, því fleiri sem við tölum við, þeim mun fleiri komi á þann vagn með okkur að það sé nauðsynlegt að ríkið stígi inn. Það mun ekki standa á okkur að fjármagna það sem við getum fjármagnað. (Forseti hringir.) Að við getum ekki byggt 2.000 íbúðir á fyrsta ári kemur kannski ekki á óvart en við þurfum að gera það hraðar þó að efnahagsástandið sé krefjandi við þær aðstæður sem uppi eru í dag.