samkomulag við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um byggingu íbúða.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Sú staða sem er uppi núna, varðandi það hversu mikið er að hægja á framkvæmdum, mun auðvitað ýta undir þá alvarlegu stöðu sem m.a. er uppi á leigumarkaði þar sem við heyrum harmakvein úr hverju horni, því miður, og það er ekkert sem bendir til annars en að það ástand sé að versna næstu misserin. Þegar illa gengur í fyrstu skrefum verkefnis sem þessa, þar sem römmuð er inn eins og hér á við uppbygging 35.000 íbúða, þá eykst auðvitað þrýstingurinn á árinu á eftir. En ég ætla ekki að þýfga hæstv. ráðherra um fleiri svör almenns eðlis. Mig langar til að spyrja um eitt verkefni tiltekið sem er í umræðunni núna og þarf að taka ákvarðanir um á næstunni, en það snýr að uppbyggingu í Nýja Skerjafirði, sem svo er kallaður. Sér hæstv. ráðherra fyrir sér að það verði farið að dæla steypu í mót þar á næstu 24 mánuðum? Þá er ég ekki að tala um jarðvinnuhluta samkomulagsins sem kynnt var (Forseti hringir.) heldur er ég að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sjái fyrir sér að það verði byrjað að dæla steypu í mót í Nýja Skerjafirði á næstu 24 mánuðum.