samkomulag við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um byggingu íbúða.
Virðulegur forseti. Nú þekkir innviðaráðherra ekki nákvæmlega tímalínur í öllum byggingaráformum á einstökum svæðum. Ég vil hins vegar sérstaklega árétta, af því að það hefur verið hluti af misskilningnum, að það sem við hjá ríkinu getum gert í uppbyggingu á íbúðarhúsnæði lýtur að þeim hópum sem geta einmitt ekki með sjálfstæðum hætti og án hjálpar eignast húsnæði, og við notum hlutdeildarlánin til þess, og heldur ekki komist inn á leigumarkaðinn öðruvísi en að við byggjum upp almenna íbúðakerfið. Þetta er sem sagt sá hópur sem er undir ákveðnum tekjuviðmiðum. Við erum áfram að treysta á markaðinn til að byggja hitt. Svo eru það auðvitað námsmenn og líka í félagslega kerfinu, ýmsir þar, og það eru reyndar áform í Skerjafirði um að byggja. Mér er kunnugt um að það muni taka eitt og hálft ár hið minnsta að fara í jarðvegsskipti á þessu svæði, jafnvel tvö ár í þessum nýja Skerjafirði. Breytingar á deiliskipulagi þurfa að liggja fyrir til að uppfylla þau skilyrði (Forseti hringir.) sem starfshópurinn komst að. Ég þori ekki að fullyrða hvenær menn byrja að steypa (Forseti hringir.) en það mun alla vega enginn búa í þeim húsum á næstu tveimur árum, það er alveg klárt. (Forseti hringir.) Það mun taka lengri tíma að hefja þá uppbyggingu en þar inni er hluti af þessum áformum, námsmenn og fleiri sem ætla að búa þarna í framtíðinni.