Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

staðan í samningaviðræðum SÍ og sérfræðilækna.

[15:28]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Heilbrigðiskerfið okkar byggir á opinberum rekstri og einkarekstri. Sterkt opinbert heilbrigðiskerfi er afar mikilvægt fyrir velferðarsamfélag, en þegar ákvörðun er tekin um að útvista heilbrigðisþjónustu til einkaaðila verða forsendur fyrir því að vera alveg skýrar; að greining á þörfum liggi fyrir, kröfulýsingar séu skýrar um magn og gæði og að vandað eftirlit sé mögulegt með aðgengi að upplýsingum. Einkarekstur má aldrei verða til þess að ýta undir ójöfnuð í samfélaginu. Þetta hljómar ágætlega. En hvernig er íslenskur raunveruleiki? Samningar við sérfræðilækna í einkarekstri hafa verið lausir í rúm fjögur ár. Sjúklingar þurfa að opna veskið og það fer eftir því hve margar krónur eru í veskinu hvort þau fá þá heilbrigðisþjónustu sem þeim ber. Fólk sem ekki hefur efni á að borga beint yfir borðið á læknastofunni þarf frá að hverfa, jafnvel þótt þau hafi verið lengi á biðlista. Já, og með því losnar pláss framar í röðinni fyrir hina efnameiri.

Sjúkratryggingar Íslands eiga að semja við sérgreinalækna en það er hæstv. heilbrigðisráðherra sem á samkvæmt lögum að skilgreina þörfina og marka stefnu um skipulag, forgangsröðun, hagkvæmni, gæði og aðgengi. Skilgreina nákvæmlega hvaða þjónustu landsmenn skuli hafa aðgang að með greiðsluþátttöku hins opinbera og undir hvaða kringumstæðum.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna ekki liggi fyrir á samningafundum við sérgreinalækna greining á þörf fyrir heilbrigðisþjónustuna og um magn og öryggiskröfur, um skilyrði greiðsluþátttöku fyrir hverja tegund þjónustu í mismunandi aðstæðum. Veit ríkið ekki um hvað það vill semja við sérgreinalækna? Er það þess vegna sem samningaviðræður ganga hvorki né reka?