staðan í samningaviðræðum milli SÍ og sérfræðilækna.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir að taka þetta málefni upp. Við höfum átt samtöl hér áður um þetta mikilvæga mál. Þetta er brýnt mál. Hv. þingmaður fór mjög vel yfir hér hlutverk hvers og eins í þessu og það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður fer hér yfir; þarfir og kröfulýsingar og viðvarandi samningsleysi í þessi fjögur ár hefur gert það að verkum að rukkun utan endurgreiðslu er orðin hærri. Ég þarf ekki að rekja það hér hvers vegna það er en það ýtir vissulega undir ójöfnuð, það er rétt. Ég hef þess vegna lagt mig fram um það fyrst og fremst að ná saman og ná samningum. Ég held að það sé afar brýnt og megi ekki bíða mikið lengur. Það er rétt síðan sem hv. þingmaður kemur hér inn á, það er mjög mikilvægt og er okkar hlutverk að skilgreina þarfir, hagkvæmni, gæði og aðgengi og það hefur legið fyrir í allan þennan tíma í samningsmarkmiðum af hálfu ráðuneytisins. Ég get ekki fullyrt það en ég held að sú skýrsla sem Ríkisendurskoðun og ríkisendurskoðandi kom með hér fyrir kannski fimm árum, um það hvernig samningar ættu að vera hér inn í framtíðina og stofnanabundnir, hafi setið aðeins í — það er fjarri því fyrirkomulagi sem hefur verið á þessum samningum hingað til þannig að ég hef lagt á það áherslu, um leið og það er auðvitað ör þróun í þessum málaflokki, að við horfum saman inn í kröfulýsingar og skilgreiningar á þörfum og þjónustu. (Forseti hringir.) Ég tek sem dæmi að nú er búið að semja um endómetríósu sérstaklega. Það er búið að semja um liðskipti sérstaklega. Við horfum inn í þessa vinnu og semjum til skemmri tíma og náum utan um þá greiningu sem liggur fyrir til að byrja með.